Laut er athvarf fyrir fólk með geðraskanir, rekið í nafni Rauða krossins í samvinnu við Akureyrarbæ og Geðverndarfélag Akureyrar. Markmið með rekstri Lautar er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðræna sjúkdóma að stríða. Í Laut er lögð áhersla á að skapa aflappað og heimilislegt andrúmsloft. Þangað koma gestir á eigin forsendum og njóta þeirrar þjónustu sem þar er í boði.
Opnunartími:
Mán. – Fös. Kl. 10:00 – 16:00
Lau. Kl. 13:00 – 16:00.
Laut Brekkugata 34
Sími: 462 6632
Netfang: laut@simnet.is.
