Um 260 sjálfboðaliðar sinna barna- og ungmennastarfi Rauða krossins um allt land, enda víða fastur liður í starfi deilda. Sérstökum ungmennadeildum er þó ekki að fjölga en nokkrar deildir bjóða hins vegar upp á afmörkuð verkefni sem eru sérstaklega ætluð ungmennum, auk þess sem fjölmargar deildir eru í samstarfi við skóla og félagsmiðstöðvar með ýmsa fræðslu og tímabundið samstarf, m.a. tengt kynningum og fjáröflunum.
Einnig er lögð áherslu á að aðstoða fólk í gegnum yfirstandandi þrengingar í íslensku samfélagi með því að bjóða börnum og unglingum upp á spennandi námskeið yfir sumartímann, þeim að kostnaðarlausu eða gegn vægu verði.
