Garðabæjardeild
Stjórn og starfsfólk
Heimsóknavinir
Föt sem framlag
Ævintýraferðir
Samstarf við FG
Fatasöfnun og Rauðakrossbúðirnar
Neyðarvarnir
Fréttir
Myndir úr starfi
Ársskýrslur
Hugmyndabanki

Ævintýraferðir

AEvintyraferdir_JPG.jpg

Verkefnið Ævintýraferðir felur í sér stuðning við fötluð ungmenni sem dvelja á skammtímavistun. Ungmenni sem sækja þjónustu skammtímavistunar búa mörg hver við félagslega einangrun sökum líkamlegrar og/eða andlegrar fötlunar. Þau fá ekki sömu tækifæri til að reyna nýja hluti líkt og önnur ungmenni á þeirra aldri þar sem oftast er þörf á aðstoðarmanni til að aðstoða þau og hvetja. Með verkefninu Ævintýraferðir hefur þjónustunotendum Hnotubergs verið veitt þetta tækifæri með því að fá unga sjálfboðaliða til að taka þátt í ferðum sem eru mjög krefjandi fyrir ungmenni með fötlun. Áhersla er lögð á að aðstoða þau við að reyna nýja hluti sem þau í flestum tilvikum hafa ekki tök á að reyna upp á eigin spýtur. Farið hefur verið í hellaferðir, fjallgöngu, fjórhjólaferð, kajak innanhúss, köfun í Sundhöllinni og að Reykjanesvita svo fátt eitt sé nefnt. Þessar ferðir eru ekki mögulegar nema með þátttöku sjálfboðaliða þar sem ekki er nægilega margt starfsfólk á skammtímavistuninni  því oft þarf einn einstaklingur að fylgja hverjum og einum þjónustunotenda allan tímann.

Markmið verkefnisins er að leitast við að efla félagslegt áræði og þátttöku, sjálfsmynd og sjálfstraust ungmenna með fötlun með því að fara með þau út fyrir sitt daglega þæginda- og öryggissvið og takast á við erfiðar aðstæður. Reynsla annarra sjálfboðaliðaverkefna Rauða krossins með fötluðum ungmennum hefur sýnt að ef þau reyna nýja og krefjandi hluti þrátt fyrir fötlun sína hefur það þær jákvæðu afleiðingar í för með sér að þátttakendur fara að horfa á getu sína með breyttu hugarfari.