Sjálboðaliðar heimsækja einstaklinga sem eru félagslega einangraðir. Hlutverk heimsóknavina er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju. Hvað gert er saman fer allt eftir samkomulagi milli heimsóknarvinar og gestgjafa. Margir kjósa að lesa saman, hlusta á tónlist eða útvarp, spila, tefla, föndra eða tala saman. Einnig fara margir í göngu- eða ökuferðir, fara saman á kaffihús eða í bíó svo eitthvað sé nefnt.
Gestgjafi og heimsóknarvinur gera samkomulag um hversu tíðar heimsóknir eru. Venjulega er miðað við eina klukkustund í senn, einu sinni í viku.
„Heimsóknavinur með hund“ er eitt verkefni heimsóknavina. Heimsóknavinir af þessu tagi, þar sem hundurinn er í aðalhlutverki, eru þekktir víða um heim og sums staðar taka hundarnir virkan þátt í þjálfun og endurhæfingu sjúklinga. Hundavinirnir á vegum Rauða kross Íslands fara í reglubundnar heimsóknir á stofnanir og heimili m.a. til langveikra barna, aldraðra og fatlaðra.
Þó nokkur undirbúningur liggur að baki hverrar heimsóknar. Eigendur hundanna þurfa að byrja á því að láta skoða hundinn til að ganga úr skugga um að hann henti í verkefnið. Standist hundurinn matið þarf eigandinn að fara á þriggja tíma námskeið fyrir almenna heimsóknavini og klukkutíma námskeið sem er sér sniðið að hundaheimsóknum. Eftir það er fundinn gestgjafi sem vill fá heimsókn frá hundi og eiganda hans.
Þeir sem hafa áhuga á að slást í hóp sjálfboðaliða eða vita um einhvern sem langar til að fá heimsókn geta fengið nánari upplýsingar um verkefnið hjá Hrafnhildi Kvaran framkvæmdastjóra Garðabæjardeildar í síma 565 9494 eða í gegnum netfangið gardabaer@redcross.is
