Garðabæjardeild
Stjórn og starfsfólk
Heimsóknavinir
Föt sem framlag
Ævintýraferðir
Samstarf við FG
Fatasöfnun og Rauðakrossbúðirnar
Neyðarvarnir
Fréttir
Myndir úr starfi
Ársskýrslur
Hugmyndabanki

Neyðarvarnir

eyjafjalla.jpg

Rauði kross Íslands tók formlega að sér það hlutverk að sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi með samningi við Almannavarnir ríkisins sem gerður var árið 1974. Reynt hafði þá á viðbrögð Rauða krossins við að aðstoða fólk sem flýja þurfti heimili sín í Vestmannaeyjagosinu árinu áður. Síðan þá hefur samkomulagið við Almannavarnir ríkisins verið endurskoðað reglulega og nú síðast í apríl 2002.

Allar Rauða kross deildir félagsins sem eru 50 og staðsettar út um allt land mynda neyðarvananet Rauða kross Íslands. Þannig sinnir fjöldinn allur af fjöldahjálparstjórum og stuðningsfólki mikilvægum verkefnum í þágu almannavarna í landinu.


Fjöldahjálparstöð:
Í fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi felst m.a. að deildir Rauða kross Íslands opna og starfrækja fjöldahjálparstöðvar. Í dag eru þær rúmlega 160 og staðsettar í öllum byggðalögum landsins.

Fjöldahjálparstöðvar eru opnaðar á hættu- og neyðartímum til að taka á móti fólki sem þarf að yfirgefa heimili sín. Þar fer fram skráning sem miðar að því að sameina fjölskyldur auk þess sem fólk fær fæði, klæði upplýsingar og nauðsynlega aðhlynningu.

Sjálfboðaliðar sinna hlutverki Rauða krossins innan almannavarnakerfisins.  Þeir sjá um rekstur fjöldahjálpastöðva á neyðartímum en þess á milli hljóta þeir bæði þjálfun og æfingu í skyndi- og fjöldahjálp.