Grindavíkurdeild
Stjórn
Föt sem framlag
Heimsóknaþjónusta
Neyðarvarnir
Námskeið
Ýmis önnur verkefni
Fréttabréf
Myndir úr starfinu

Heimsóknavinir

Starf heimsóknavina er mikilvægt verkefni í hverri deild Rauða krossins. Sjálfboðaliðar heimsækja fólk á öllum aldri sem búa við einsemd og/eða félagslega einangrun.

Heimsóknavinir Grindavíkurdeildar hafa um árabil heimsótt heimilisfólk í Víðihlíð. Auk þess heimsækja sjálfboðaliðar okkar fólk í heimahúsum og veita því félagsskap með því að spila á spil, spjalla og fara í gönguferðir svo eitthvað sé nefnt.

Alltaf er hægt að bæta við heimsóknavinum og geta áhugasamir haft samband við Ágústu H. Gísladóttur, s. 823 1922, til frekari upplýsinga.