Ertu í atvinnuleit og/eða hefur þú þekkingu sem þú vilt deila í sjálfboðastarfi?
Sjálfboðaliðar óskast - Hafið samband við Guðrúnu Ólafsdóttur
Viltu vera virkur í atvinnuleit og hitta aðra atvinnuleitendur? Ef svarið er já þá er Deiglan rétti staðurinn fyrir þig. Deiglan er virknisetur fyrir atvinnuleitendur staðsett í Rauðakrosshúsinu í Hafnarfirði á Strandgötu 24.
Deiglan bíður uppá viðburði 3 daga í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl 10:00 til 15:00
Við höfum alltaf pláss fyrir gott fólk hvort sem þú vilt koma og njóta þeirra viðburða sem boðið er uppá, halda námskeið eða fyrirlestur eða koma á framfæri hugmyndum tendum atvinnuleit og nýsköpun. Deiglan er það sem atvinnuleitendur sjálfir búa til úr henni og við hvetjum fólk til virkrar þátttöku. Komdu endilega og hittu líflegan hóp atvinnuleitenda. Ekki hika!
Allar nánari upplýsingar um starfið má fá hjá Guðrúnu Ólafsdóttur verkefnisstjóra gudruno@redcross.is eða í síma 565-1222
Láttu sjá þig!