Heimsóknarvinur er sjálfboðaliði sem heimsækir gestgjafa sinn að öllu jöfnu einu sinni í viku.
Fyrirkomulag heimsóknarinnar er samkomulag en oftast spjallar fólk saman yfir kaffibolla eða fer í gönguferðir. Einnig getur heimsóknarvinur lesið fyrir viðkomandi.
Sjálfboðaliðar sem sinna heimsóknarþjónustu fara á sérstakt námskeið hjá deildinni og eru bundnir þagnarskyldu. Vitneskja um persónulega hagi fer ekki lengra. Mikilvægt er að geta hlustað, talað við fólk á rólegum nótum og tekið hverjum og einum eins og hann er.
Hægt er að senda inn beiðni um heimsóknavin með því að smella hér.

_og_Skellur_(til_haegri)_netid.jpg)