KANNT ÞÚ SKYNDIHJÁLP?
Hér er að finna tuttugu spuringar sem hjálpa fólki að átta sig á skyndihjálparkunnáttu sinni.
Rétt!
Því miður ekki rétt
Rétt svar er: .
1. Góð líkamsstaða fyrir einstakling með öndunarerfiðleika er að hann:
|
a
|
sitji uppréttur eða standi |
|
b
|
halli sér aftur í stól |
|
c
|
liggi á bakinu á hörðu gólfi |
|
d
|
standi á höndum |
2. Hversu hratt á að hnoða fullorðinn mann við endurlífgun?
|
a
|
eins hratt og hægt er |
|
b
|
100 sinnum á mínútu, sama hvort hlé er tekið til að blása í viðkomandi eða ekki |
|
c
|
á taktinum 80 sinnum á mínútu |
|
d
|
á taktinum 100 sinnum á mínútu |
3. Þegar meðhöndla á einstakling vegna ofkælingar er mikilvægt að:
|
a
|
meðhöndla hann mjög varlega |
|
b
|
hvetja hann til að hoppa sér til hita |
|
c
|
gefa honum alkóhól eða heitan drykk |
|
d
|
nudda hann vel til að hita hann upp |
4. Í flestum tilfellum er heppilegasta stellingin fyrir einstakling með blóðnasir:
|
a
|
að sitja með höfuðið hallandi lítillega aftur |
|
b
|
að sitja með höfuðið hallandi lítillega fram |
|
c
|
að liggja á bakinu með ofurlítið hærra undir höfði |
|
d
|
að liggja á hliðinni |
5. Ef fleiri en tveir eru slasaðir, hverjum á að sinna fyrst?
|
a
|
þeim sem er hljóðlátur |
|
b
|
þeim sem hrópar hæst á hjálp |
|
c
|
þeim sem grætur sárast |
|
d
|
þeim sem virðist blæða mest |
7. Fyrsta skrefið í meðhöndlun á vægum bruna er að:
|
a
|
setja aloa vera gel á brennda svæðið |
|
b
|
leggja ísvatn í poka við brennda svæðið |
|
c
|
kæla brennda svæðið í allt að eina mínútu |
|
d
|
kæla brennda svæðið með volgu vatni |
8. Þegar blásið er í sjúkling skal blása:
|
a
|
hratt í um ½ sek. – þangað til brjóstkassi lyftist |
|
b
|
kröftuglega í um 1 sek. – þangað til brjóstkassi lyftist |
|
c
|
um 400 til 500 ml af lofti á um 1 sek. – þangað til brjóstkassi lyftist |
|
d
|
eins hratt og kröftuglega og mögulegt er |
9. Þegar þú kemur á slysstað er mikilvægast að byrja strax á því að:
|
a
|
fara í næsta síma og tilkynna slysið |
|
b
|
veita nauðsynlega neyðarhjálp |
|
c
|
koma í veg fyrir frekari slys |
|
d
|
reyna að finna einhvern annan til að stýra aðgerðum |
10. Eftir höfuðhögg á að:
|
a
|
leyfa viðkomandi að sofna ef hann er þreyttur |
|
b
|
leyfa viðkomandi að sofna en vekja hann með reglulegu millibili og fylgjast þannig með ástandi hans |
|
c
|
passa vel upp á að hann sofni ekki |
|
d
|
ekkert ofantalið er rétt |
11. Við fyrsta mat á slösuðum þarf að byrja á því að kanna:
|
a
|
meðvitund og öndun |
|
b
|
öndun og heilastarfsemi |
|
c
|
taugaviðbrögð og blóðrás |
|
d
|
öndun, hjartslátt og meltingu |
12. Einstaklingur í sykurfalli þarf:
|
a
|
sykurlausan djús eða gos að drekka |
|
b
|
sykur t.d. sultu eða sykurmola |
|
c
|
vatn að drekka helst með miklu salti |
|
d
|
að jafna sig áður en nokkuð er að gert |
13. Hvert eftirtalinna viðbragða eru eðlileg tilfinningaleg viðbrögð við áfalli?
|
a
|
grátur og hlátur |
|
b
|
æsingur |
|
c
|
skammir til viðstaddra |
|
d
|
allt ofangreint |
14. Til að meta ástand einstaklings sem grunur leikur á að hafi fengið heilablóðfall er best að biðja viðkomandi að:
|
a
|
hlæja/sýna tennurnar og endurtaka einfalda setningu |
|
b
|
lyfta báðum handleggjum upp samtímis og klappa lófunum |
|
c
|
endurtaka einfalda setningu og syngja síðan gamla Nóa |
|
d
|
draga djúpt andann og reka út úr sér tunguna |
15. Ef þrýstingur á sár er ekki nógu mikill til að stöðva blæðingu er næsta skref að:
|
a
|
þrýsta betur og hækka undir líkamshlutanum ef mögulegt er |
|
b
|
setja snarvöndul fyrir ofan blæðingastaðinn |
|
c
|
kæla sárið svo æðarnar dragist saman |
|
d
|
bæta umbúðum á sárið |
16. Hvað af eftirfarandi einkennum benda til innvortis blæðingar?
|
a
|
mar á húð |
|
b
|
brotin rif og mar á brjóstkassa |
|
c
|
blóðug uppköst |
|
d
|
allt ofangreint er rétt |
17. Í endurlífgun fullorðinna á að:
|
a
|
þrýsta brjóstkassanum 4-5 sentimetra beint niður með beinum handleggjum |
|
b
|
hnoða á miðjan brjóstkassann, mitt á milli geirvartanna og létta þrýstingi af brjóstkassanum eftir hvet hnoð |
|
c
|
hnoða 30 sinnum og blása 2 sinnum til skiptis |
|
d
|
a, b og c rétt |
18. Þegar stendur í ½ árs gömlu barni á að:
|
a
|
slá 5 sinnum á milli herðablaðanna og þrýsta 5 sinnum á brjóstkassann |
|
b
|
þrýsta fyrst fast á kviðinn („Heimlich) 5 sinnum og slá á bakið 5 sinnum |
|
c
|
taka í fæturna á barninu, hvolfa því og hrista |
|
d
|
allt ofantalið er rétt |
19. Hvernig veistu að umbúðir um sár eru of þéttar?
|
a
|
rauð húð fyrir neðan áverka |
|
b
|
dofi í útlim fyrir neðan áverka |
|
c
|
heitur útlimur fyrir neðan áverka |
|
d
|
ekkert ofantalið er rétt |
20. Við tognun á ökkla er best að:
|
a
|
vera á hreyfingu þar til verkurinn hverfur |
|
b
|
leggja ískaldan bakstur á ökklann, í a.m.k. tvær klukkustundir |
|
c
|
hækka undir fætinum og leggja kaldan bakstur við áverkann |
|
d
|
setja spelku á særða fótinn strax |
Einkun af 10
Þekking þín í skyndihjálp er nokkuð góð.
Þekking þín í skyndihjálp þín er í meðallagi.
Þekking þín í skyndihjálp er léleg.
Vissir þú að oftast eru það vinir eða ættingjar sem fyrstir koma á vettvang þegar einhver slasast eða veikist alvarlega? Stutt skyndihjálparnámskeið hjá Rauða krossinum getur gert þér kleift að bjarga mannslífi þegar mínútur skipta máli.