Kjósarsýsludeild safnar notuðum fötum, skóm og vefnaðarvöru fyrir Fatasöfnun Rauða krossins. Öll vefnaðavara kemur að notum, líka það sem er slitið eða illa farið. Það sem ekki nýtist sem fatnaður fer í endurvinnslu og skilar mikilvægum tekjum til Rauða krossins í leiðinn. Skór, gluggatjöld, rúmföt og handklæði eru vel þegin.
Á öllum endurvinnslustöðum Sorpu er að finna söfnunrgáma Fatasöfnunar, en einnig má skila fötum inn í Rauðakrosshúsið Þverholti 7. Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:
- Í barnafata skiptimarkað fyrir 12 ára og yngri sem opinn er í Þverholti 7 alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10-13.
- Seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins.
- Flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi.
- Flokkaður og gefinn þurfandi erlendis.
- Flokkaður og seldur í Rauða kross búðunum að Laugavegi 12, Laugavegi 116, í Mjódd í Reykjavík, Strandgötu 24 Hafnarfirði og Garðatorgi í Garðabæ.
Fataúthlutun Í Reykjavík fer fram að Laugavegi 116 á miðvikudögum kl 10 - 14, gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin.