Kjósarsýsludeild
Fréttir
Stjórn og starfsfólk
Verkefnin okkar
Barnafata skiptimarkaður
Foreldrarölt
Fatasöfnun
Föt sem framlag
Heimsóknavinir
Námskeið
Opið hús - dagskrá
Ungmennadeild
Myndir úr starfinu
Hyjar_hufur_verja_bornin_gegn_naeturkuldanum.jpg
Hlýjar húfur verja börnin gegn næturkuldanum

Ertu með eitthvað á prjónunum?    Sjálfboðaliðar Kjósarsýsludeildar RKÍ prjóna, hekla og sauma föt fyrir hjálparstarf innanlands og erlendis.

Flestir hittast í Rauðakrosshúsinu Þverholti 7 á miðvikudögum kl. 13-15 en aðrir prjóna eða sauma heima fyrir, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.  Allir eru hjartanlega velkomnir að taka þátt.

Útbúnir eru sérstakir ungbarnapakkar fyrir 0-12 mánaða sem sendir eru til barna og fjölskyldna í neyð í Afríku eða A-Evrópu.  Í hverjum pakka eru 2 peysur, 2 samfellur, 4 taubleiur, húfa, teppi, handklæði, 2 sokkapör og buxur.

Einnig eru útbúnir staðlaðir pakkar fyrir 2-12 ára börn í Hvíta Rússlandi.  Þar eru veturnir langir og kaldir og mikil þörf á hlýjum og skjólgóðum klæðnaði.  Í þessum pökkum eru buxur, stuttermabolur, peysa, húfa, sokkar og vettlingar.

Alltaf er þörf á prjónuðum flíkum fyrir Rauða kross búðirnar eða markaði deildarinnar eins og sokkum, vettlingum, treflum, húfum og peysum og geta sjálfboðaliðar einnig tekið þátt í því.

Prjónar og garn eru á staðnum, en einnig er velkomið að taka með sér eigin prjónadót. Rjúkandi kaffi á könnunni og með því.

Óskum eftir öllu afgangsgarni og prjónum sem fólk er tilbúið að gefa í þetta verkefni. Enginn garnspotti er svo lítill að ekki sé hægt að nýta hann!
 
Hér má sjá nokkur sýnishorn af nýjustu verkum hópsins