Kjósarsýsludeild
Fréttir
Stjórn og starfsfólk
Verkefnin okkar
Barnafata skiptimarkaður
Foreldrarölt
Fatasöfnun
Föt sem framlag
Heimsóknavinir
Námskeið
Opið hús - dagskrá
Ungmennadeild
Myndir úr starfinu

Kjósarsýsludeild stendur reglulega fyrir ýmsum námskeiðum fyrir sjálfboðaliða og almenning.  Að auki er fjöldi námskeiða í boði á vegum Landsskrifstofu Rauða krossins, eins Grunnnámskeið Rauða krossins, námskeið fyrir nýja heimsóknavini og Viðhorf og virðing.  Upplýsingar um þau námskeið má finna á síðunni:  www.raudikrossinn.is.

 

Næstu námskeið Kjósarsýsludeildar eru:

Sálrænn stuðningur I - 15. febrúar  kl. 17:30.

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja rifja upp eða öðlast færni og þekkingu í sálrænum stuðningi. Námskeiðið er gagnlegt fyrir almenning, starfsmannahópa, starfsfólk með mannaforráð og sjálfboðaliða Rauða kross Íslands.

Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju. 

Kennari: Elín Jónasdóttir, sálfræðingur.

Námskeiðið fer fram í Þverholti 7, Mosfellsbæ og kostar 2000 krónur.  Sjálfboðaliðar með gildan sjálfboðaliðasamning sitja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.

Skráning

 

Skyndihjálp 4 stundir – 21. febrúar, kl. 17:30.
Getur þú hjálpað þegar á reynir?

Vissir þú að oftast eru það vinir eða ættingjar sem koma fyrstir á vettvang þegar einhver slasast eða veikist alvarlega?  Stutt skyndihjálparnámskeið getur gert þér kleyft að bjarga mannslífi þegar mínútur skipta máli.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum.

Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru:
* Undirstöðuatriði skyndihjálpar.
* Fjögur skref skyndihjálpar.
* Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð.
* Innvortis- og útvortis blæðingar.
* Bruni, brjóstverkur, bráðaofnæmi og heilablóðfall.

Kennari er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.

Kennsla fer fram í Þverholti 7, Mosfellsbæ og kostar 5000 krónur. Sjálfboðaliðar með gildan sjálfboðaliðasamning sitja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fyrir 2012 fá 10% afslátt.

Skráning