Verkefnið föt sem framlag hjá Rauða krossinum er margþætt og sinna sjálfboðaliðar alls konar störfum sem miða að því að nýta föt til að aðstoða aðra.
Sjálfboðaliðar vinna í Fatasöfnunarstöð Rauða krossins við að flokka föt, þeir vinna í Rauða kross búðunum við afgreiðslu og sinna svo handavinnu sem er seld til fjáröflunar eða úthlutað til fólks í neyð.
Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar sinna öllum þessum störfum en flestir sinna handavinnunni. Sá hópur hittist síðasta miðvikudaginn kl. 16-18 í hverjum mánuði í Rauðakrosshúsinu í Hamraborg í prjónakaffi. Þá fá sjálfboðliðarnir garn til að prjóna úr og tækifæri til að eiga skemmtilega stund saman. Hópurinn hittist einnig reglulega og pakkar prjónaflíkunum sínum í þar til gerða fatapakka sem sendir eru erlendis til barna og fjölskyldna í neyð.
Þá er farinn af stað nýr basarhópur en hlutverk hans er að útbúa ýmis konar handverk fyrir jólabasar. Hópurinn hittist vikulega á þriðjudögum kl. 10-14 í Rauðakrosshúsinu í Hamraborg.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni geta haft samband við deildina í síma 554 6626 eða á kopavogur@redcross.is.
Þeir sem vilja gefa garn eða garnafganga í verkefnið eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við deildina.
