Deildin tekur virkan þátt í neyðaraðstoð Rauða kross Íslands erlendis. Deildin svarar öllum neyðarbeiðnum sem berast frá landsskrifstofunni.
Alþjóða Rauði krossinn hefur áratuga reynslu af hjálparstarfi og nýtur virðingar og trausts um allan heim. Alþjóðahreyfingin starfar ætíð í samvinnu við Rauða kross félagið í viðkomandi landi – eða Rauða hálfmánann eins og félögin eru kölluð í flestum löndum múslima.
Kemst aðstoðin til skila?
Oft er spurt hvort neyðaraðstoð Rauða krossins komist til skila. Sú staðreynd að aðstoðin fer alltaf í gegnum hið þétt riðna net alþjóðahreyfingarinnar minnkar hættu á misnotkun eða mistökum til mikilla muna því starfsfólk hreyfingarinnar fylgir aðstoðinni eftir frá upphafi til enda, þ.e. sendir hana af stað og tekur við henni á leiðarenda.
