Allar nánari uppýsingar um námskeiðin fást hjá deildinni í síma 5450-400 á skrifstofutíma eða Reykjavik@redcross.is
Almenn skyndihjálp
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
Sálræn skyndihjálp
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geri sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum, læri hvernig þeir geti veitt stuðning og þekki hvaða úrræði samfélagið hefur upp á að bjóða í tengslum við sálræna skyndihjálp og mannlegan stuðning.
Slys á börnum
Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna á sjúkrahús o.fl.
Börn og umhverfi
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Fjallað er um slysavarnir og algengar slysahættur og veitt ítarleg kennsla í skyndihjálp. Þátttakendur fá innsýn í sögu og starf Rauða krossins.
Heimsóknaþjónusta
Námskeiðið er ætlað sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á því að sinna heimsóknum til fólks sem býr við einangrun og einsemd.
Fjöldahjálp
Námskeiðið veitir fjöldahjálparstjóraréttindi. Fjallað er um skipulag almannavarna, gerð neyðarvarnaáætlana og uppsetningu fjöldahjálparstöðva.
Grunnnámskeið
Á námskeiðinu er fjallað ítarlega um sögu og starf Rauða krossins og deilda hans. Æskilegt er að allir sjálfboðaliðar sæki slíkt námskeið.
Viðhorf og virðing - námskeið um fjölbreytni
Markmið námskeiðsins eru m.a. að vinna að gegn fordómum og mismunun gagnvart minnihlutahópum í samfélaginu. Að beina sjónum að afleiðingum kynþáttafordóma og að þátttakendur geri sér gein fyrir eigin viðhorfum og viðbrögðum.
Deildanámskeið
Deildanámskeið eru ætluð þeim sem starfa í stjórnum deilda og/eða hafa yfirumsjón með verkefnum á vegum Rauða kross Íslands en nauðsynlegt er að þeir hafi góða þekkingu á innra starfi hreyfingarinnar.
Mannúð og Menning
Námskeiðin eru ætluð 9-11 ára börnum. Á námskeiðinu er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni. Þátttakendur fræðast um starf Rauða krossins, skyndihjálp, mismunandi menningarheima og umhverfið.