Eftir að Skagafjarðardeild kom sér upp eigin húsnæði hefur hún tekið á móti fötum frá Skagfirðingum, en áður var fólki bent á að senda fötin beint til Rauða krossins í Reykjavík. Sjálfboðaliðar í deildinni sjá núna um senda fötunum til Reykjavíkur þar sem þau eru flokkuð. Umtalsvert af fatnaði safnast og má telja það gott verk að fötin skuli nýtast öðrum en sínum fyrri eigendum, en þau koma að góðum notum í hjálparstarfi innanlands og erlendis. Fötin héðan eru send suður en síðan hefur deildin stundum fengið fatapakka senda að sunnan, eða frá Akureyri, til að nýta sem einstaklingsaðstoð í Skagafirði. Þess má einnig geta að deildin hefur oft fengið hluta af innbúi og hefur það verið notað bæði sem einstaklingsaðstoð hér heima og síðan sent suður á nytjamarkað þar.