Skagafjarðardeild RKÍ hafði frumkvæði að því að koma af stað sumarbúðum fyrir fatlaða að Löngumýri í Skagafirði. Var það gert í samvinnu við Fjölskylduþjónustu Skagafjarðar og Svæðisstjórn fatlaðra á Norðurlandi vestra og rekið þannig eitt tímabil og þá eingöngu fyrir fatlaða í Skagafirði. Síðar tók deildin upp samstarf við RKÍ deildir á Norðurlandi. Enn síðar bættust svo við Reykjavíkurdeild og deildir á höfuðborgarsvæðinu og stendur þessi hópur núna að téðum sumarbúðum.
Tímabilin á hverju sumri eru orðin þrjú og koma fatlaðir alls staðar að af landinu til að dvelja með okkur að Löngumýri. Sjálfboðaliðar frá deildinni hafa verið duglegir að taka þátt í þessu starfi en einnig er nokkuð um að til okkar komi sjálfboðaliðar frá öðrum deildum auk þess sem björgunarsveitarmenn og almenningur hefur aðstoðað við fjallgöngurnar.
Einnig heldur Skagafjarðardeild RKÍ úti verkefni sem kallast Tómstundarhópur Rauða krossins. Þar hittast hópur af fólki einusinni í viku og skipuleggur tómstundir sínar og hlustar á ýmis erindi tengdum þjóðfélagsumræðu og tengdum málefnum. Þessi ópur var stofnaður haustið 2005 og hefur starfað síðan. Við hópin starfa 3 leiðbeinendur sem aðstoða þátttakendur við skipulagningu og annað sem þarf hverju sinni. Að auki koma sjálfboðaliðar að starfinu ef um mikkla viðburði er að ræða.