Árið 1944 var stofnuð ungliðadeildin Árvakur, innan Sauðárkróksdeildar RKÍ. Frá upphafi starfaði ungliðadeildin í nánum tengslum við barnaskólann á staðnum og fljótlega virðist sá siður hafa verið tekinn upp að einhver kennari skólans, helst aðalkennari þess bekkjar sem börnin komu úr, hafi haft umsjón með deildinni. Starfið innan deildarinnar fór þannig fram að félögum var skipað í nefndinr sem störfuðu samkvæmt erindisbréfi og gáfu nefndarformenn skýrslu á hverjum fundi. Það kom líka í hlut ungliðanna að sjá um merkjasölu fyrir Rauða kross deildina og árið 1944 seldi drengir í ungliðadeildinni bækur um heilbrigt líf og vaxtarækt til ágóða fyrir Rauða krossinn. Eftir síðari heimsstyrjöldina dró mjög úr starfi ungliðadeilda almennt og virðist sem þetta starf hafi um land allt lagst af árið 1959. Á Sauðárkróki tókst að halda uppi þróttmiklu starfi allt fram á sjöunda áratuginn er ungliðadeildin lognaðist út af. Árið 1985 var ungliðastarfið endurvakið.
Starf ungliðadeildar í Skagafirði er alltaf að aukast og hefur það verið markmið hjá Skagafjarðardeild RKÍ að styðja vel við það starf. Meðal verkefna síðast liðinna mánaða er handþrykk gegn ofbeldi, geimveruverkefnið og þátttaka í verkefnum á vegum URKÍ eins og Á flótta, Landsmót URKÍ og m.f.l
Ungmenni hafa verið sérstaklega dugleg sem sjálfboðaliðar m.a. við átök eins og Göngum til góðs, sem tvisvar sinnum hefur farið fram um land allt.
Hér er heimasíða URKÍ www.redcross.is/urki