Alþjóðleg mannúðarlög miða að því lina þjáningar fólks í stríði. Með undirritun Genfarsamninganna hafa ríki heims skuldbundið sig til þess að takmarka stríðsreksturinn á ýmsan hátt og hlífa þeim sem ekki taka beinan þátt í ófriðnum.
Venjuréttur kemst á þegar almenn sannfæring er fyrir því að mönnum beri að hegða sér á tiltekinn hátt. Alþjóðaráð Rauða krossins hefur tekið saman 161 reglu um hegðan í stríði, sem stríðsmönnum ber að fara eftir hvort sem viðkomandi ríki hafa skuldbundið sig um það formlega að alþjóðalögum eða ekki.