Laugardaginn 28. febrúar 1976 var Rauða kross deild Víkurlæknishéraðs stofnuð. Fyrstu stjórnina skipuðu: Björn Ármann Ólafsson, Elsa Tryggvadóttir og Steinunn Pálsdóttir, varamenn Jón Ingi Einarsson og Reynir Ragnarsson. Björn var kosinn formaður. Hann flutti af landi brott árið 1976 og tók Jón Ingi Einarsson við formennskunni af honum.
Aðalverkefni deildarinnar var í upphafi að kaupa sjúkrabíl í héraðið og voru kaupin fjármögnuð með framlögum úr sýslusjóði, af Rauða krossi Íslands og síðast en ekki síst með almennri söfnun í læknishéraðinu, sem er Mýrdalur og Austur Eyjafjallahreppur. Á aðalfundi 28. maí 1978 er bíllinn tekinn formlega í notkun.
Á fyrsta starfsárinu var haldið fyrsta námskeiðið á vegum deildarinnar. Var það námskeið í skyndihjálp.
Árið 1997 var nafni deildarinnar breytt lítillega. Hún heitir síðan Víkurdeild RKÍ.
Viðamesta verkefnið til þessa er tvímælalaust kaup á sjúkrabílum og rekstur þeirra í 22 ár í umdæmi deildarinnar